
■ Samskipanastillingar
Áður en hægt er að nota margmiðlunarboð, kallkerfi, tölvupóst, samstillingu,
straumspilun og vafra, verður að slá inn réttar samskipanastillingar í tækið. Tækið
kann að setja sjálfkrafa upp stillingar fyrir vafra, margmiðlunarboð, aðgangsstað
og straumspilun samkvæmt SIM-kortinu sem notað er. Að öðrum kosti er hægt
að nota forritið
Stillingahjálp
til að samstilla stillingarna og einnig er hægt
að fá stillingarnar í samskipanaboðum og þá þarf að vista þær í tækinu. Nánari
upplýsingar má fá hjá þjónustuveitunni eða næsta viðurkennda söluaðila Nokia.
Þegar stillingarnar berast í samskipanaboðum, og þær eru ekki vistaðar og
virkjaðar sjálfvirkt, birtist
1 ný skilaboð
á skjánum. Veldu
Sýna
>
Valkostir
>
Vista
til að vista stillingarnar. Þú gætir þurft að slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá
þjónustuveitunni.