Stillingar Bluetooth-tengingar
Veldu
>
Stillingar
>
Tenging
>
Bluetooth
.
Bluetooth
- Til að kveikja og slökkva á Bluetooth-tengingu.
69
T e n g i n g a r
Sýnileiki síma míns
- Til að leyfa að önnur Bluetooth-tæki geti ávallt fundið tækið
þitt velurðu
Sýnilegur öllum
. Til að leyfa að hægt sé að finna tækið þitt á tilgreindu
tímabili skaltu velja
Tilgreina tímabil
. Til öryggis er þér ráðlagt að nota stillinguna
Falinn
þegar það er mögulegt.
Nafn síma míns
- Til að gefa tækinu heiti.
Ytra SIM
- Til að gera öðru tæki, t.d. bílbúnaði, kleift að nota SIM-kort tækisins
með Bluetooth-tækni (SIM access profile).
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara
símtölum með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt
að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er forritað
í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur
verið læst skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.