 
■ Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um að þú 
notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndum söluaðila Nokia og skoða 
heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi skrefum:
Þó svo þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að 
rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki ósvikin 
Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds þjónustu- eða 
söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort rafhlaðan 
sé ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til 
verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.
Sannvottun heilmyndar
1. Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá
Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og „Nokia 
Original Enhancements“ táknið frá öðru.
2. Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður
ættirðu að sjá 1, 2, 3, eða 4 punkta, allt eftir staðsetningu 
hennar.
Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?
Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin 
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda 
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Notkun rafhlaða sem eru ekki samþykktar af framleiðanda 
getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og aukahlutir þess virki 
ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir 
eða ábyrgðir sem eiga við tækið.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.
 
75
U m h i r ð a o g v i ð h a l d