Forsendur fyrir samnýtingu hreyfimynda
Samnýting hreyfimynda krefst tengingar við þriðju kynslóðar farsímakerfi (UMTS).
Upplýsingar um farsímakerfi og gjald fyrir notkun forritsins fást hjá
þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota samnýtingu hreyfimynda þarftu að gera eftirfarandi:
• Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir tengingar á milli
einstaklinga.
• Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og viðtakandinn séu skráðir
á UMTS-símkerfið.
• Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu og sért innan
dreifisvæðis UMTS-símkerfis. Ef þú ferð út úr UMTS-farsímakerfi meðan
samnýting fer fram, þá rofnar hún en símtalið heldur áfram.