Nokia 6210 Navigator - Kort skoðuð

background image

Kort skoðuð

Til að ræsa

Kort

skaltu styðja á leiðsögutakkann.

Þegar þú notar Kortaforritið í fyrsta skipti þarftu e.t.v. að velja
farsíma-aðgangsstað til að geta hlaðið niður kortaupplýsingum um þann
stað sem þú ert staddur á. Hægt er að breyta sjálfgefnum aðgangsstað síðar
með því að velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Internet

>

Símkerfi

.

Til að fá tilkynningu þegar tækið tengist farsímakerfi utan heimakerfis skaltu velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Internet

>

Viðvörun um reiki

>

Kveikt

.

Þjónustuveitan veitir nánari upplýsingar um reikigjöld.

background image

38

S t a ð s e t n i n g

Gagnaflutningsvísirinn sýnir hvaða internettenging er notuð og hve mikið af
gögnum hefur verið flutt síðan forritið var ræst.

Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að einhverju leyti. Aldrei skal treysta
eingöngu á kort sem ætluð eru til notkunar með þessu tæki.

Þegar þú opnar kortaforritið sýnir það staðsetninguna sem vistuð var síðast eða
höfuðborg þess lands sem þú ert staddur í. Korti af staðnum er einnig hlaðið niður,
ef þörf krefur.

Til að koma á GPS-tengingu og súmma að staðnum sem þú varst á síðast skaltu
styðja á leiðsögutakkann eða velja

Valkostir

>

Núv. staður

.

GPS-vísir (

) sýnir aðgengi og sendistyrk gervihnattarmerkisins. Eitt

strik merkir einn gervihnött. Þegar tækið fær næg gögn frá gervihnettinum til
að koma á GPS-tengingu verður strikið grænt. Tækið þarf að fá merki frá a.m.k.
fjórum gervihnöttum til að geta reiknað út punkta núverandi staðar. Eftir fyrstu
útreikninga ættu merki frá þremur gervihnöttum að nægja.

Til að súmma að eða frá skaltu styðja á * eða #. Til að færast til á kortinu notarðu
skruntakkann. Nýju korti er sjálfkrafa hlaðið niður ef þú flettir að svæði sem
ekki er á kortum sem þegar hefur verið hlaðið niður. Sjá „Kortum hlaðið niður“
á bls. 40. Kortin eru ókeypis en niðurhal getur falið í sér stórar gagnasendingar
um farsímakerfi þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um gagnaflutningsgjöld. Kortin vistast sjálfkrafa í minni tækisins eða á samhæfu
minniskorti (ef slíkt kort er í tækinu).