Nokia 6210 Navigator - Hugbúnaðaruppfærslur

background image

Hugbúnaðaruppfærslur

Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum, bættum
aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur hugsanlega nálgast þessar uppfærslur með
forritinu Nokia Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa
Nokia Software Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000, XP eða
Vista stýrikerfi, háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.

Hægt er að hlaða niður Nokia Software Updater forritinu, og fá upplýsingar um það,
á www.nokia.com/softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi.

Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kannt þú einnig að geta
beðið um uppfærslur úr tækinu. Sjá „Hugbúnaður uppfærður“ á bls. 67.

Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.

Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en
uppfærslan er ræst.

background image

9

F y r s t u s k r e f i n